Textastærð

-A +A

Jarðefnafræði

Efnafræðilegar greiningar á sýnum af yfirborðsjarðhitavökva gera kleift að meta líklegan hita í viðkomandi jarðhitakerfi, og gefa hugmynd um suðuferla, streymisleiðir vökva og uppruna hans.Ástríður Harðardóttir á rannsóknarstofu ÍSOR. © Fríður Eggertsdóttir

ÍSOR hefur yfir að ráða fullkominni rannsóknarstofu sem búin er tækjum til efnagreininga á:

  • jarðhitavatni
  • köldu vatni
  • gasi 
  • gufu
  • borsvarfi
  • útfellingum
  • bergi

Helstu efnagreiningatæki eru: Atómísogstæki, litrófsmælir, jónaskilja, gasgreinir og röntgenflúrljómunartæki, auk ýmissa smærri efnagreiningatækja. Stofan á hluta í ICP-tæki með Iðntæknistofnun og Rannsóknarstofnun landbúnaðarins. Jónaskilja er rekin í samvinnu við Háskóla Íslands og Iðntæknistofnun. 

Sviðsstjóri rannsóknarstofu: Finnbogi Óskarsson, efnafræðingur.

Þekkingarstjóri í jarðefnafræði: Þráinn Friðriksson, jarðefnafræðingur