Laus störf
ÍSOR er eitt stærsta og öflugasta fyrirtæki heims í rannsóknum og jarðvísindaþjónustu við jarðhitaiðnaðinn og nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar sem slíkt. Jafnframt hefur ÍSOR verið leiðandi á Íslandi í rannsóknum á jarðfræðilegri byggingu hafsbotnsins kringum landið.
ÍSOR og forverar þess hafa í 60 ár verið meðal leiðandi aðila í þróun þeirrar tækni sem gert hefur Ísland að einu fremsta ríki heims í nýtingu jarðhita og útvegað Íslendingum orku á mun lægra verði en hægt hefði verið með öðrum orkugjöfum.
ÍSOR stundar margvíslegar þverfaglegar rannsóknir og veitir þjónustu og ráðgjöf á sviði jarðhita og jarðvísinda og annast kennslu í jarðhitafræðum.
Starfsmenn eru 74 af fimm þjóðernum.
Aðalstöðvar ÍSOR eru í Reykjavík en jafnframt er rekið útibú á Akureyri. Að auki rekur ÍSOR fyrirtæki í Chile ásamt verkfræðistofunni Verkís.
Við erum ekki með nein laus störf eins og er en velkomið er að senda inn umsókn með ferlisskrá til starfsmannastjóra ÍSOR, Guðnýjar Þórsdóttur, á netfangið gudny@isor.is

