Ráðgjöf við boranir
Einn af lykilþáttunum við nýtingu jarðhita er að staðsetja og bora vel heppnaðar holur. ÍSOR hefur víðtæka reynslu á þessu sviði af áratuga undirbúningsvinnu við allar háhitavirkjanir á Íslandi. Því bjóðum við alhliða boranaráðgjöf á eftirfarandi sviðum.
- Hönnun og staðsetnig borholna
- Greiningar á borsvarfi/leðju
- Greiningar á borkjarna
- Eftirlit með borunum

